|
Ljósgjafinn ehf Ljósgjafinn ehf. er eitt af rótgrónustu fyrirtækjum Akureyrar. Starfsemin hófst opinberlega þann 5. maí árið 1966, en stofnendur voru rafvirkjarnir Arnar Daníelsson, Axel Clausen, Björn Þorkelsson, Einar Malmquist, Páll H. Jónsson og Ólafur Jónsson. Sá síðastnefndi, Ólafur, er einn eftir af upphaflegum eigendum, en stærstur eignahlutur í dag er í höndum Jóns F. Ólafssonar, Randvers K. Karlssonar og Láru Bjarkar Kristinsdóttur. Hjá fyrirtækinu starfa, að jafnaði, á bilinu 50-60 manns og þar af mjög öflugur mannafli sérhæfðra tæknimanna. Meginhlutverk og markmið Meginhlutverk Ljósgjafans er að sinna umsvifamikilli rafverktakastarfsemi víða um land ásamt rekstri raftækjaverslunar og verkstæðis. Fyrirtækið er drifið áfram af því markmiði að bjóða upp á traustar og hagkvæmar heildarlausnir í öllu því sem lýtur að raf- og raftæknibúnaði til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Samkvæmt skipuriti skiptist starfsemin í tvö meginsvið: Lágspennusvið og Smáspennusvið Rafverktaka Á langri vegferð hefur Ljósgjafinn tekið að sér fjöldamörg smá og stór verkefni víðsvegar um landið. Á meðal þeirra var t.d. umfangsmikil lagnavinna í stærri mannvirkjum eins Hvalfjarðargöngum og Kröfluvirkjun, en Landsvirkjun hefur verið öflugur verkkaupi hjá fyrirtækinu í gegnum tíðina. Að öðru leyti er Ljósgjafinn ehf. með fasta þjónustusaminga við yfir 60 fyrirtæki og stofnanir sem að mestu koma úr öflugu iðnaðarumhverfi Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins. Verkefnin felast, að mestu, í uppsetningum, eftirliti og viðhaldi rafkerfa ásamt sívöktun þeirra allan sólarhringinn. Verslun og þjónusta Árið 1992 opnaði Ljósgjafinn raftækjaverslun sem nú er staðsett að Glerárgötu 34. Aðsetur verkstæðis Ljósgjafans er síðan að finna að Glerárgötu 32, með aðgengi frá Hvannavöllum. Óhætt er að segja að tilkoma verslunarinnar hafi verið tekið fagnandi af áhugasömum viðskiptavinum og aukið sóknarfæri rekstrarins á öllum sviðum. Á þessum tíma var stafræna byltingin að skella á og því varð símkerfaþjónusta að einum helsta vaxtarbroddi starfseminnar. Síðan þegar Internetið hóf innreið sína af fullum þunga varð forritum og umsjón með tölvukerfum einnig mjög umsvifamikil. Stærstu samstarfsaðilar að þessu leyti eru Smith & Norland, Síminn, Opin kerfi, Öryggismiðstöð Íslands og Valitor. Skýr stefnumótun til framtíðar Árið 2003 setti Ljósgjafinn niður skýra stefnumótun til framtíðar. Þar sem m.a. segir að fyrirtækið kappkosti við viðhalda metnaði sínum muni ávallt leitast við að vera leiðandi á sínu sviði og að skipulagt verklag fyrirtækisins nái einnig yfir ímynd þess og ásýnd út á við. Þá eru þjónustugæði ekki eingöngu áunnin með verkkunnáttu, heldur líka með hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi, ögðuðum vinnubrögðum og snyrtimennsku á vinnustað. Með slíkt veganesti í farangrinum er leiðin inn í framtíðina vörðuð.
|