top of page

Raflagnahönnun

 

Starfsmenn tæknideildar Ljósgjafans hafa unnið að hönnun í flestar gerðir mannvirkja. Oft enda þessi hönnunarverk á að við gerum verklýsingar og magntöluskrár. Einnig sjáum við um eftirlit verka á framkvæmdatíma og erum til ráðgjafar á verktíma sé þess óskað.

Oft tökum við að okkur að sjá um rafverktöku á verkefnum allt frá hönnun til framkvæmda.

Tæknideild gefur verðtilboð í hönnun og gerð magntöluskráa, verk- og skilalýsingar.

 

Smá brot af þeim verkefnum sem við höfum unnið að eru þúsundir íbúða, verslanir, skrifstofur, verkfræðistofur, hótel, skólar, sumarhús, landbúnaðarbyggingar, iðnaðarþvottahús, ferðamannastaðir, verslunarmiðstöðvar, skautahöll, tjaldstæðahús, lýsing í ferðamannahelli, brugghús, fiskeldisstöð, steypueiningarverksmiðju, hurða- og gluggaverksmiðju, innréttingasmiðju, arkitektastofu, snyrtistofu, skjástýringakerfi í jarðgöng, svæðislýsingar á plönum, götum og margt fleira. 

bottom of page